Öflugt vefumsjónarkerfi
Eplica er eitt öflugasta vefumsjónarkerfið í notkun á Íslandi í dag. Einfalt en öflugt viðmót og þægilegt aðgengi gerir það að verkum að notendur Eplica vinna í því umhverfi sem þeir þekkja úr helstu ritvinnsluforritum svo sem MS Word og Open Office. Í Eplica er innifalið allt það sem nauðsynlegt er til að byggja upp metnaðarfullan vef, til að mynda umsýsla greina, frétta, skjala og myndefnis sem gerir viðskiptavinum kleift að auka þjónustu á vefsvæðum sínum á einfaldan og skilvirkan hátt.
Eplica býr yfir öflugri réttinda- og ritstjórnarstýringu sem einfaldar rekstur vefsvæða og eykur samþættingu efnis sem skilar sér til notandans í auknum mæli hvort sem að um er að ræða innri eða ytri vefi fyrirtækja.
Mikil áhersla er lögð á að kenna viðskiptavinum vel á kerfið svo þeir verði sem mest sjálfbjarga við notkun þess. Þjónustuborð Hugsmiðjunnar er öllum opið og þar eru lipurð og skjót viðbrögð sett í öndvegi. Stöðugar viðbætur og þróun ásamt miklum tengimöguleikum við önnur kerfi tryggir að Eplica vaxi með tímanum.

