Vingjarnlegt í notkun
Dagleg umsýsla í Eplica vefumsjónarkerfinu er sérlega þægileg. Auðvelt er fyrir vefstjóra og aðra notendur að setja inn og viðhalda texta, myndum og öðrum gögnum.
Eplica vefumsjónarkerfið er sérlega þjált í notkun og auðvelt er að setja inn nýtt efni og breyta því sem fyrir er. Skráðir notendur vinna efni beint á viðkomandi vefsíðum og rétt útlit sést því um leið og unnið er. Eplica vefumsjónarkerfið og vinnubrögð Hugsmiðjunnar tryggja gott aðgengi og að Eplica vefir koma vel út í mismunandi umhverfi og leitarvélum.
Vefritill Eplica gerir alla vinnslu efnis einfalda og aðgengilega. Vefritill Eplica er sveigjanlegur og aðlagar sig eftir aðgerðum notandans, þannig birtir hann ritvinnsluaðgerðir á textasvæðum en myndvinnsluaðgerðir ef mynd er valin. Vefritillinn styður helstu aðgerðir sem notaðar eru í ritvinnslu og virkni hans er þar af leiðandi eitthvað sem flestir notendur Eplica ættu að þekkja.
Helstu kostir vefritils
- Afritun efnis úr ritvinnsluforritum eins og Word, Open Office og Excel
- Afritun efnis af eldri vefsíðum ásamt því að viðhalda framsetningu eldra efnis
- Helstu aðgerðir ritvinnslu svo sem framsetning texta, töflur, staðsetning mynda og hlekkir
- Notendur vinna í endanlegu útliti og framsetningu vefsins
- Vefritillinn gerir greinarmun á hvort verið er að vinna með texta eða myndir
- Staðsetning mynda og skjala er í höndum notandans
- Skráningar mynda og skjala eru aðgengilegar í gegnum vefritilinn

