Einstakt og þægilegt
Eplica vefumsjónarkerfið er sérlega þjált í notkun og auðvelt er að setja inn nýtt efni og breyta því sem fyrir er.
Eftir innskráningu vinna notendur efni beint á viðeigandi vefsíðu og rétt útlit sést því um leið og unnið er. Þetta einfaldar alla efnisvinnu og styttir námstíma.
Auðvelt er að afrita efni úr ritvinnsluforritum (t.d. Word) yfir í Eplica með öllum helstu sniðstílum (fyrirsögnum, textaáherslum, greinarskilum, töflum, o.s.frv.) en Eplica hreinsar hins vegar sjálfkrafa burt óþarfa upplýsingar sem geta valdið vandræðum.
Með þeim skýru vinnubrögðum sem fylgja Eplica aukast afköst notenda og vandvirkni. Slíkt leiðir til traustari ímyndar viðkomandi fyrirtækis og eykur hagræði í daglegu viðhaldi efnis.
Góð aðgengishönnun gagnast öllum
Aðgengilegt vefsvæði þarf að vera sett fram með skýrum og skilmerkilegum hætti. Það auðveldar meðal annars leitarvélum að finna upplýsingar og skrá þær rétt, ásamt því að notendahópurinn stækkar og vefurinn verður aðgengilegur t.d. sjónskertum og blindum. Aðgengilegt vefsvæði er einnig forsenda þess að hægt sé að nálgast upplýsingar af vefsvæðinu fyrir lófatölvur og farsíma og búa starfsmenn Hugsmiðjunnar yfir víðtækri sérfræðiþekkingu á sviði aðgengishönnunar.

