Kunnuglegt umhverfi
Sveigjanlegt og notendavænt viðmót eykur afköst og samþættingu fyrirtækja til muna hvort sem er fyrir innri eða ytri vefi. Efnisinnsetning og viðhald er sá þáttur sem vegur hvað þyngst í uppsettningu farsæls vefs. í Eplica byggir þessi þáttur á vefritil sem að veitir stuðning við öll helstu ritvinnsluforrit og gerir það að verkum að kennsluferlið styttist til muna og að notendur verða sjálfbjarga við uppfærslu og viðhald vefsvæðisins. Vinnsla efnis á sér stað í því umhverfi sem að vefurinn er hannaður fyrir og hættan á að framsetning efnis brotni er minnkuð til muna þar sem að notandinn sér efnið eins og það kemur til með að líta út.
Viðmót Eplica er með því öflugasta sem þekkist í dag, notendur kerfisins hafa lofað vefritilinn, stutt námsferli og hversu sjálfbjarga þeir eru við fyrstu kynni: Við teljum að það sé ekki að ástæðulausu.
Gerðu þína eigin úttekt og hafðu samband við ráðgjafa og fáðu kynningu á því sem Eplica hefur upp á að bjóða.

