Leiðbeiningar og þjónusta
Einfalt og vel framsett kennsluefni ásamt hnitmiðuðu námskeiði er forsenda þess að viðskiptavinir Eplica eigi sem þægilegustu viðkynningu á kerfinu og að full sátt ríki milli notenda og kerfis. Mikil áhersla er lögð á að kenna viðskiptavinum vel á kerfið svo þeir verði sem mest sjálfbjarga við notkun þess. Þjónustuborð Hugsmiðjunnar er öllum opið og þar eru lipurð og skjót viðbrögð sett í öndvegi.
Hugsmiðjan býður viðskiptavinum Eplica upp á ítarlegt námskeið þar sem að farið er vel yfir öll þau helstu atriði er við koma umsýslu efnis í Eplica. Einnig er boðið upp á upprifjunar námskeið fyrir hópa eða einstaklinga. Leiðbeiningar má nálgast má beint úr helstu aðgerðum Eplica á hjálparvef. Notendur geta smellt á hjálpar-hnappa víðsvegar í kerfinu til að fá ítarlegar leiðbeiningar. Þjónustuborð Eplica er opið alla virka daga milli klukkan 9:00 og 17:00. Viðskiptavinir geta nýtt sér þekkingu starfsmanna Hugsmiðjunnar í gegnum síma eða fengið sendar upplýsingar í gegnum tölvupóst.

