Meðal verkefna okkar undanfarnar vikur má nefna ný vefsvæði fyrir Þjóðminjasafn Íslands, Tanna auglýsingavörur og Flugvirkjafélag Íslands.
Lesa meiraNýr og efnismikill vefur Nóatúns er án efa girnilegasti vefur sem Hugsmiðjan hefur sett upp. Myndir af hvers kyns kræsingum blasa við hvert sem litið er og spennandi uppskriftir bíða þess að vera prófaðar.
Lesa meirahefur fyrir löngu skipað sér fastan sess sem uppspretta fróðleiks um allt og ekkert. Þar veitist almenningi innsýn í það hugvit sem býr innan veggja Háskólans og eftir rúmlega sjö ára feril inniheldur svarabankinn hátt í 7000 svör við spurningum gesta.
Lesa meiraTvær nýjar viðbætur hafa litið dagsins ljós í Eplica kerfinu, RSS þjónusta og vörn gegn ruslsendingum (spammi). RSS þjónusta gefur notendum kleift að gerast áskrifendur að efni vefsíða og ruslvörnin kemur í veg fyrir að óvelkomið efni rati inn á síður í gegnum vefform. Þessar viðbæturnar hafa verið unnar í tengslum við væntanlega uppfærslu Eplica kerfisins en eru samhæfðar þeim Eplica útgáfum sem nú þegar eru í notkun. Hér að neðan er fjallað um þessar einingar og kostnað við að taka þær í notkun.
Lesa meiraÍ dag opnaði heilbrigðisráðherra nýjan og glæsilegan vef Lyfjastofnunar. Á vefnum er að finna mikið magn upplýsinga um þennan mikilvæga þátt heilbrigðiskerfisins, meðal annars ítarlegar upplýsingar um öll þau lyf sem í boði eru á íslenskum markaði, fróðleik um vítamín og steinefni og margs konar tölfræðilegar upplýsingar.
Lesa meiraÁgæti viðskiptavinur.
Þær breytingar hafa orðið á eignarhaldi Hugsmiðjunnar ehf. að Þórarinn Friðjónsson, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar, hefur keypt þriðjungshlut í fyrirtækinu af stofnanda þess, Stefáni Baxter. Jafnframt keypti Industria ehf. 20% hlut í fyrirtækinu af Stefáni. Aðrir hluthafar eru Tryggingamiðstöðin hf. og nokkrir lykilstarfsmenn Hugsmiðjunnar. Lesa meira
Það felst í orðanna hljóman að aðgengileg vefsíða er auðlesin og auðskiljanleg og auðvelt er að komast á hana og frá henni á aðrar vefsíður.
Það gildir því almennt sú þumalputtaregla að ef vefsvæði standast viðteknar kröfur um aðgengi allra notenda, þá eykst jafnframt sýnileiki viðkomandi vefsvæðis í flestum venjulegum leitarvélum á borð við Google.
Lesa meiraSímanúmerið okkar er 5 500 900.
Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.
Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.