Hvammsvík með nýtt vefsvæði
Hvammsvík er útivistarsvæði og þar er nú rekin blómleg ferðaþjónusta. Þar er m.a. í boði silungsveiði, golfvöllur, kajakferðir, sjóstangveiði, svartfuglsveiði, skemmtisiglingar, hestar, grillveislur o.fl. Tilvalið fyrir fjölskyldudag starfsmannafélagsins eða ættarmótið, sem og einstaklinginn með veiðistöngina eða fjölskyldur vopnaðar golfkylfum, gönguskóm og nestiskörfum.
Hvammsvík ehf stundar blómlegan innflutning á vörum fyrir kajaksportið, bæði plast og trefjaplastbátum ásamt öllum mögulegum fylgihlutum. Um er að ræða vörumerki sem þekkt eru fyrir gæði s.s Palm, Lendal, Valley Kayaks,QajaQ, Hasle, Kirton, Rainbow, ShockWave o.fl. Þær vörur sem Hvammsvík flytur inn fást allar á staðnum, og hægt er að prufa báta. Notaður búnaður er einnig seldur í Hvammsvík.
Það var Sverrir Hreiðarsson (Jolli) sem sá um útlitshönnun en uppsetning var í höndum Hugsmiðjunnar.
