Öryrkjabandalags Íslands - fyrirmynd annarra vefsvæða

20 jún. 2005

Þann 16.06 var undirritaður samningur milli Öryrkjabandalag Íslands og Hugsmiðjunnar ehf um nýja heimasíðu fyrir ÖBÍ, sem verður aðgengileg öllum notendum. Hugsmiðjan ehf hefur sérhæft sig í að hafa heimasíður aðgengilegar og lagt sérstaka áherslu á fatlaða notendur.

Til að heimasíða geti verið aðgengileg öllum þarf hún að uppfylla ákveðnar kröfur og er stuðst við alþjóðlegan gátlista sem fyrirtækið Sjá ehf hefur þróað og staðfært, en það fyrirtæki hefur haft veg og vanda að þarfagreiningu fyrir vefinn og umsjón með útboði fyrir ÖBÍ. Sjá ehf. og ÖBÍ hafa einnig verið í samstarfi vegna aðgengis og vottun á aðgengilegum vefjum.

Markmið með þessari heimasíðu er að hún verði fyrirmynd annarra heimasíðna varðandi aðgengismál fyrir fatlaða notendur á vefnum hérlendis og víðar. ÖBÍ leggur mikla áherslu á að allir notendur, óháð getu eða fötlun geti skoðað heimasíðuna sér til fróðleiks og upplýsinga. Heimasíðan á einnig að vera vettvangur fyrir umræðu og skoðanaskipti og skapa vettvang fyrir aðildarfélög til að koma sinni starfsemi og þjónustu á framfæri.

Heimasíðan verður sýnileg á haustdögum

------

Við þökkum Öryrkjabandalaginu traustið og þá viðurkenningu á starfi okkar undanfarin ár, sem felst í vali þeirra á okkur sem samstarfsaðila fyrir þetta spennandi verkefni.

-Starfsfólk Hugsmiðjunnar







Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica