Mannréttindaskrifstofa Íslands með vef

9 sep. 2005

Það var Hugsmiðjan sem sá um ráðgjöf og uppsetningu á vefsvæðinu í samráði við starfsmann skrifstofunnar. Um útlitshönnun sá Ben Blakley hjá Reuss New Media.

Á vefsíðunni er að finna:

  • Upplýsingar um starfsemi Mannréttindaskrifstofu Íslands
  • Sérvef um mannréttindi á Íslandi
  • Sérvef alþjóðlegs rannsóknarverkefnis The Human Rights Education Project er inniheldur fræðaefni um mannréttindi, helstu réttarheimildir og fjölda dóma og álita frá alþjóðlegum eftirlitsstofnunum

Ánægð með Eplica kerfið

Mannréttindaskrifstofan er afar ánægð með eplica kerfið en það er auðvelt í
notkun og hefur gert alla vinnu við nýju heimasíðuna einfalda og þægilega.
Starfsmenn og stjórnendur Hugsmiðjunnar hafa verið til fyrirmyndar og verið
boðnir og búnir að aðstoða okkur í hvívetna. Við kunnum þeim bestu þakkir
fyrir ánægjulegt samstarf og hlökkum til að vinna með fyrirtækinu áfram.

Guðrún D. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands

Um Mannrétindaskrifstofu Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð stofnun sem vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. Skrifstofan gegnir einnig ákveðnu eftirlitshlutverki en hún veitir umsagnir um lagafrumvörp og skilar skýrslum til eftirlitsnefnda Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins.

Um Hugsmiðjuna

Hugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við Eplica. Það sérhæfir sig í hvers konar hugbúnaðargerð og hefur síðan í jánúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir Eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.







Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica