112 og Vaktstöð siglinga opna vef

11 okt. 2005

Starfsmenn Neyðarlínunnar bera mikla ábyrgð sem tengiliðir almennings við neyðarsveitir landsins, heimasíðunni er ætlað að gefa innlit í störf þeirra.

Það var Hugsmiðjan sem sá um ráðgjöf og uppsetningu á vefsvæðinu í samráði við starfsmenn Neyðarlínunnar 112 sem sáu um efnisvinnslu.

Um Neyðarlínuna 112

Neyðarlínan hf. var stofnuð í október 1995 og hóf neyðarsímsvörun í 112 1. janúar 1996. Rekstur neyðarnúmersins 112 og tengdrar þjónustu eru enn megin viðfangsefni fyrirtækisins. Auk þess hefur Neyðarlínan annast rekstur stjórnstöðvar Securitas frá sama tíma.

Um Vaktstöð siglinga

Samkvæmt þjónustusamningi við Siglingastofnun Íslands sem undirritaður var 1. júní 2004 tók Neyðarlínan að sér rekstur Vakstöðvar Siglinga sem áður var tilkynningarskyldan og fjarskiptastöðin í Gufunesi. Þar með er öll öryggisþjónusta við sjófarendur veitt á einum stað.


Um Hugsmiðjuna

Hugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við Eplica. Það sérhæfir sig í hvers konar hugbúnaðargerð og hefur síðan í jánúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir Eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.







Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica