Glæsivefur Gestgjafans
Þið sem ekki eruð áskrifendur enn, getið þó skoðað ýmislegt líka - t.d. lesið matarspjallið, tekið þátt í umræðum á spjallborðinu, fengið svör við spurningum og fleira. Enski hlutinn er líka opinn fyrir alla og tilvalið að benda vinum og vandamönnum erlendis á þá síðu.
Sólveig Baldursdóttir, ritstjóri Gestgjafans, hélt ræðu við opnunina og fjallaði m.a. um vinnuna við gerð vefsins:
„Þetta er stór dagur í lífi mínu og okkar allra sem stöndum að Gestgjafanum og það gleður mig mikið að þið skulið deila honum með okkur. Vinnan á bak við nýja Gestgjafavefinn er búin að vera gífurleg en þegar umbunin og útkoman er svona góð eins og þið eigið eftir að verða vitni að eftir stutta stund þá er allt í lagi.“
Starfsmenn Hugsmiðjunnar sáu upp hönnun og uppsetningu á vefsvæðinu í náinni samvinnu við starfsmenn Gestgjafans. Vefsvæðið er samansett úr fjölmörgum tilbúnum og stöðluðum kerfiseiningum Eplica vefumsjónarkerfisins. Meðal kerfiseininga sem notaðar eru má nefna : frétta- og greinalistar með athugasemdum, spjallborð, vefverslun og greiðslumiðlun, áskriftakerfi, markpóstskerfi og fullkomið uppskriftakerfi.
Hluti verkefnishópsins á bak við Gestgjafinn.is og heiðursgestir við opnunina: Haraldur Gunnlaugsson, verkefnastjóri Hugsmiðjunnar, Hrafn Thoroddsen, vefforritari hjá Hugsmiðjunni, Reynir Pálsson, vefhönnuður hjá Hugsmiðjunni, forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, Sólveig Baldursdóttir, ritstjóri Gestgjafans, Nanna Rögnvaldardóttir, vefritstjóri Gestgjafinn.is, og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra.
Um Gestgjafann
Með tilkomu Gestgjafans, árið 1981, má segja að nýir straumar hafi farið um íslensk eldhús. Áhugafólk um matargerð fékk loksins blað í hendur þar sem það nýjasta í matargerð var kynnt. Þar mátti finna leiðbeiningar um það hvað ætti að gera við alls kyns nýtt hráefni og kryddtegundir sem voru farnar að fást hér. Algjör bylting varð í íslenskri veitingahúsamenningu á áratugnum sem fór í hönd og veitingahúsum fjölgaði ört. Fólk fór að fara út að borða að tilefnislausu, eins og gert var í útlöndum, og fram á sjónarsviðið spruttu veitingahús þar sem var að finna ólíka matargerð, eins og kínverska, indverska og svo framvegis.
Um Hugsmiðjuna
Hugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við Eplica vefumsjónarkerfið. Það sérhæfir sig í hvers konar hugbúnaðargerð og hefur síðan í jánúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir Eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.

