Nýr vefur TM hlýtur vottun

Einn af nýjum vefjum í Eplica-kerfinu

9 jan. 2006

Vefurinn fær bæði vottun fyrir forgang 1 og 2 og er TM fyrsta einkafyrirtæki á Íslandi til þess að fá slíka vottun. Er þetta í samræmi við það höfuðmarkmið TM að veita góða þjónustu á mannlegum nótum. Forgangur 1 er lágmarkskrafa um aðgengi fatlaðra að vef en til að fá forgang 2 þarf að uppfylla mun fleiri skilyrði.

Dæmi um breytingar sem orðið hafa á vef TM eru að nú geta blindir og sjónskertir notað talgerfla og sérhönnuð lyklaborð með síðunni eða stækkað letrið. Lesblindir geta breytt um bakgrunnslit og hreyfihamlaðir geta vafrað án þess að nota músina. Til viðbótar þessu hafa verið settar inn útskýringar á allar myndir, tenglaheiti hafa verið gerð skýrari og stærð og tegund viðhengja kemur vel fram. Enn fremur hafa skammstafanir verið teknar út eða eru með útskýringu.

Engar reglur eru í gildi hérlendis um aðgengi að heimasíðum en í nágrannalöndum okkar er komið í lög að heimasíður opinberra stofnana sem og flestra fyrirtækja eigi að vera aðgengilegar öllum notendum, óháð fötlun eða getu. Níu af hverjum tíu vefjum eru óaðgengilegir hluta manna og tíu til tólf prósent þjóðarinnar eiga við einhvers konar fötlun að stríða. Þessi hópur hefur jafnvel meiri not af heimasíðum en aðrir.

Vottun vefráðgjafarfyrirtækisins Sjá byggist á gátlistanum WAI (Web Accessibility Initiative) sem er alþjóðlegur staðall fyrir aðgengi á Netinu. Sjá hefur í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands sniðið listann að íslenskum aðstæðum og hefur hann verið prófaður af notendum með margs konar fötlun. Aðeins Strætó bs. hefur fengið vottun 1 og 2 áður.

Á myndinni eru Anna Ingibergsdóttir, vefstjóri TM, Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands, Pétur Pétursson, framkvæmdastjóri vátrygginga- og fjármálaþjónustu hjá TM með innrammað vottunarskjal og Alda Sigurðardóttir hjá Sjá ehf.

Frá þessu er sagt á vef Tryggingamiðstöðvarinnar.







Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica