Persónuvernd velur Hugsmiðjuna
Um er að ræða endurnýjun á vef stofnunarinnar, www.personuvernd.is. Tilboðið innifelur Eplica-vefumsýslukerfið, en í því er m.a. frétta- og greinakerfi og mynda- og skjalakerfi. Einnig leggur Hugsmiðjan til öfluga leitarvél sem leitar ekki einungis í greinum og fréttum, heldur einnig í skjölum, svo sem ritvinnsluskjölum og pdf. Hugsmiðjan mun einnig sjá um innlestur gagna af eldri vef Persónuverndar og setur upp skráningarform fyrir gagnagrunna stofnunarinnar, sem og leitar- og birtingarform fyrir sömu grunna.
Hlutverk Persónuverndar er að hafa eftirlit með framkvæmd laga um persónuupplýsingar og persónuvernd. Forveri Persónuverndar er tölvunefnd og hafði hún eftirlit með framkvæmd laga um skráningu og meðferð persónuupplýsinga
Í tíð tölvunefndar byggðist eftirlit með meðferð persónuupplýsinga einkum á leyfisveitingum. Var fjölþætt skráning persónuupplýsinga háð leyfum frá tölvunefnd og voru leyfi sem hún gaf út bundin þeim skilmálum sem hún mat nauðsynlega hverju sinni. Starf Persónuverndar byggist á öðrum áherslum. Í stað þess að veita leyfi fyrir ýmiss konar meðferð persónuupplýsinga og setja fyrirmæli um hvernig að því skuli staðið veitir Persónuvernd fyrst og fremst almennar leiðbeiningar, setur almennar reglur og hefur eftirlit með því að þeim sé fylgt.
Forstjóri Persónuverndar er Sigrún Jóhannesdóttir.
