Elísabet - nýjung á tryggingamarkaði
Notar eplica kerfið
Nýjungin sem kynnt er felst í því að öll viðskipti með bílatryggingar og bílalán fer fram á netinu. Elísabet býður því mun lægri iðgjöld en áður hafa þekkst. Elísabet er sérstaklega aðgengilegur vefur, einfaldur í notkun og auðskiljanlegur. Auk þess að leggja til Eplica-vefumsjónarkerfið þá sá Hugsmiðjan um hönnun á vefnum í samstarfi við auglýsingastofuna Jónsson & Le'macks, vefun og uppsetningu sem og þróun tryggingakerfisins sem Elísabet byggir á og tengingu þess við vefinn.
Tryggingamiðstöðin hf. stendur á bakvið verkefnið og öll nauðsynleg bakþjónusta er veitt af tryggingafélaginu.
