Aðgengi allra að vefnum
Áhugaverð skýrsla um stefnu stjórnvalda í aðgengismálum
Ákveðið hefur verið að fara að þeim tillögum sem lagðar eru fram í skýrslunni og stefna að því að allir opinberir vefir á Íslandi uppfylli ákveðnar lágmarkskröfur í aðgengismálum.
Í skýrslunni er fjallað um aðgengismál í alþjóðlegu samhengi, greint frá stöðu mála á Íslandi og aðgengisvottun íslenskra vefja. Fjallað er um opinbera vefi og lagaumhverfi og settar fram tillögur um hvernig opinberir vefir geti orðið aðgengilegir öllum.
Skýrslan er mjög greinargott innlegg í umræðu um aðgengismál almennnt, þótt hún fjalli fyrst og fremst um opinbera vefi, og markar stefnuna að mörgu leyti fyrir þá sem starfa að vefmálum.
Skýrsluna er að finna á UT-vefnum en hann er einmitt unninn af Hugsmiðjunni.
