Skýrr opnar nýjan vef
Vefurinn er hannaður af Hugsmiðjunni og þykir mjög glæsilegur og gefa góða mynd af Skýrr sem framsæknu, öflugu og nútímalegu fyrirtæki.
Það er mikil viðurkenning fyrir Hugsmiðjuna að Skýrr skuli velja fyrirtækið sem samstarfsaðila um þennan mikilvæga þátt í rekstri fyrirtækisins.
Fleira er á döfinni í samstarfi fyrirtækjanna. Hugsmiðjan vinnur nú að Upplýsingaheimum Skýrr, www.uh.is. Við hönnuðum þann vef og erum að vinna tengingar við hinar ýmsu gagnaveitur sem hægt verður að nálgast þar. Búið er að gera tengingu við ökutækjaskrá Umferðarstofu og margar fleiri veitur eru í undirbúningi. Notenda getur skráð sig inn á "Sína síðu" og valið inná hana leitarglugga í þær veitur sem hann notar mest.
