Við leitum að þjónustustjóra
Verksvið þjónustudeildar
Þjónustudeild gegnir veigamiklu hlutverki, sérstaklega í samskiptum við viðskiptavini Hugsmiðjunnar. Helstu verksvið eru:
- Notendaþjónusta
- Uppsetning vefsvæða
- Kennsla
- Prófanir á vefsvæðum
Hæfni
Þjónustustjóri þarf hafa þekkingu á vefmálum og HTML. Þekking á CSS, gagnagrunnum og Flash er æskileg.
Við leitum að einstaklingi sem:
- Hefur menntun sem nýtist í starfinu
- Hefur reynslu sem nýtist í starfinu
- Er skipulagður og ákveðinn
- Hefur mjög góða tölvukunnáttu
- Vill þróast og þroskast í starfi
Við leitum að metnaðarfullum og samviskusömum einstaklingi. Hann þarf að sýna frumkvæði og geta unnið sjálfstætt sem og í hóp og hafa ríka þjónustulund.
Umsókn
Umsóknir sendist á atvinna@eplica.is fyrir 18. ágúst næstkomandi. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst. Fullum trúnaði er heitið.
Hér getur þú skoðað auglýsinguna eins og hún birtist í dagblöðum.
