Hugsanleg vandamál vegna Internet Explorer 7

Tilboð til notenda Eplica kerfisins

23 okt. 2006

Eldri útgáfur Internet Explorer hafa ekki fylgt viðurkenndum stöðlum til fulls og því hefur þurft að taka tillit til sérþarfa þeirra í stílblöðum. Í þessari nýju útgáfu Explorer er stuðningur við staðla bættur að hluta, en eins og oft vill verða með stórar breytingar á hugbúnaði bætast nýir hnökrar við og eldri hnökrar hafa jafnvel fundið sér nýjar birtingarmyndir.

Algengasta afleiðingin er sú að einhverjir þættir í útliti vefja kunna að skolast til þegar þeir eru skoðaðir í nýja vafranum: Innbyrðis afstaða eininga getur hliðrast, eða einingar orðið illa sýnilegar.

Hvaða áhrif hefur þetta á vefi frá Hugsmiðjunni?

Allur texti og undirliggjandi gögn eru ósködduð, aðeins er um að ræða misfellur í framsetningu á síðum. Einnig er rétt er að taka fram að stjórnkerfi Eplica kerfisins og vefritilinn virka fullkomlega með Internet Explorer 7.

Það er mismunandi milli vefsvæða hversu sýnilegir hnökrar af þessu tagi verða, á sumum vefjum kann að vera að einungis stöku síður birtist undarlega og í einhverjum tilvikum verða engin sýnileg vandamál.

Hugsmiðjan mælir þó með að öll vefsvæði verði yfirfarin vegna þessa þótt gallar blasi ekki við í fyrstu.

Hugsmiðjan býður viðskiptavinum sínum að yfirfara vefsvæði þeirra og lagfæra vandamál vegna birtingar í Explorer 7. Við setjum þak á að útseld vinna vegna þessara lagfæringa fari ekki yfir 3 tíma fyrir hvert vefsvæði. Sendið okkur tölvupóst á ie7@eplica.is (með upplýsingum um vefsvæði og tengilið) til að þiggja þetta tilboð.

Búast má við miklu álagi á starfsmenn Hugsmiðjunnar vegna yfirferðar á þeim fjölmörgu vefsvæðum sem nota Eplica, en við munum kappkosta að afgreiða beiðnir um lagfæringar hratt og örugglega. Beiðnirnar verða skráðar skipulega og afgreiddar í þeirri röð sem þær berast.

Beiðni um yfirferð sendist á ie7@eplica.is.





Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica