Nýr vefur Kjararáðs
Kjararáð ákveður laun og starfskjör forseta Íslands, þingmanna og ráðherra, héraðsdómara og hæstaréttardómara. Auk þess ákveður ráðið laun og starfskjör annarra ríkisstarfsmanna sem svo er háttað um að laun þeirra geta ekki ráðist með samningum á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu.
Guðrún Zoëga er formaður kjararáðs.
Vefur Kjararáðs er ekki stór, en framsetning er skýr og aðgengi að upplýsingum gott.
Hugsmiðjan óskar Kjararáði til hamingju með nýjan og glæsilegan vef.
