Glitnir velur Hugsmiðjuna
Í hönnunarvinnunni felst m.a. í því að vinna að upplýsingaarkitektúr vefs Glitnis, viðmóti og útliti. Einnig eru allar nýjar aðgerðir hannaðar af Hugsmiðjunni.
Viðmótsforritun Hugsmiðjunnar felst m.a. í því að vefa allar nýjar síður (t.d. heimabankann) en einnig í því að fara yfir allt html og css og þróa það. Hér er um viðamikið verkefni að ræða sem mun bæta mikið alla þjónustu á vefnum.
Af hálfu Glitnis er um metnaðarfullt verkefni að ræða og þátttaka í því er mikil viðurkenning fyrir Hugsmiðjuna og starfsmenn hennar.
