Iðnnemasamband Íslands með nýja síðu
Í frétt á heimasíðunni segir m.a.:
Iðnnemasamband Íslands var stofnað lýðveldisárið 1944 í framhaldi af því að lög voru sett á Alþingi sem meinuðu iðnnemum að vera í sveinafélögum. Tilgangurinn hefur alltaf verið skýr og meiginmarkmið félagsins er að vernda hagsmuni iðnnema í hvívetna.
Í áranna rás hefur félagið tekið breytingum í takt við breytingar í menntakerfinu og á atvinnumarkaðnum. Nú eru flest allir nemar innan sveinafélaganna á ný, en á öðrum forsendum.
Það er skemmst frá því að segja að INSÍ hafi náð fram góðum breytinum á ýmsum sviðum í samvinnu við önnur félög og aðila. INSÍ heldur úti skrifstofu á Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík og er hún opin alla virka daga frá 10-16.
Eins og stendur eru tveir starfsmenn starfandi fyrir félagið ásamt stjórn. Hér á heimasíðu okkar munum við reyna að varpa ljósi á kosti og galla iðnnáms og veita allar þær upplýsingar sem tengjast iðnnámi á einn eða annan hátt.
Við skorum á alla að koma með ábendingar og hugmyndir að innihaldi síðunnar. Við bjóðum ykkur velkomin á heimasíðu okkar og vonum að hún komi að góðum notum.
Hugsmiðjan óskar Iðnnemasambandinu til hamingju með nýjan og glæsilegan vef.
Vefur Iðnnemasambands Íslands.
