Ársskýrsla Icelandair á sjálfstæðum Eplica vef
Undanfarin ár hafa mörg hlutafélög birt ársskýrslur sínar á vefnum og þá ýmist sem PDF skrár eða sem veftexta innan þeirra skorða sem vefur félagsins setur. Ársskýrsla á PDF sniði heldur útliti prentaðrar útgáfu, en býður sjaldnast þá möguleika í samtengingu efnisflokka sem vefur leyfir.
Ársskýrsla Icelandair Group hefur sitt eigið leiðarkerfi og nýtir þá möguleika sem veftæknin býður til flokkunar og framsetningar efnis án þess að vera afmarkað af veftré fyrirtækisins sjálfs eða línulegri efnisskipan prentaðrar skýrslu.
Eins og oft vill verða í útgáfu ársskýrslna voru margir þræðir að koma saman á síðustu dögunum fyrir útgáfuna, en með sveigjanleika Eplica kerfisins og þekkingu starfsmanna Hugsmiðjunnar tókst að ljúka öllu sem þurfti fyrir aðalfund félagsins.
Ársskýrsla Icelandair Group hefur vakið töluverða athygli og án efa eiga fleiri fyrirtæki eftir að íhuga þessa leið í útgáfu.
Útlitshönnun var í höndum Hugsmiðjunnar og tekur hún mið af vef Icelandair (sem einnig er hannaður af Hugsmiðjunni) og útliti ársskýrslunnar sem unnið er af Íslensku auglýsingastofunni.
