Ráðherra opnar glæsilegan vef Lyfjastofnunar

30 apr. 2007

Einnig er hægt að nota vefinn til að tilkynna um aukaverkanir lyfja, bæði fyrir almenning og heilbrigðisstarfsfólk. Þetta er gott dæmi um það hlutverk sem vefir eru farnir að gegna í opinberri stjórnsýslu; sífellt fleiri nota vefinn sem sinn fyrsta snertipunkt við viðkomandi stofnun og gagnvirkni af þessu tagi gerir vefgestum kleift að ljúka sínum erindum auk þess að einfalda allt utanumhald um innsend gögn.

Lyfjastofnun var áður með vef í öðru vefkerfi og við flutninginn yfir í Eplica var komið á tengingum við ýmis eldri upplýsingakerfi, en að auki er Sérlyfjaskrá birt í svokallaðri "i-frame" framsetningu. Það er einmitt einn af styrkleikum Hugsmiðjunnar hversu mikil þekking er fyrir hendi á samþættingu við önnur upplýsingakerfi, eftir þeim möguleikum sem þau bjóða.

Að sjálfsögðu nýtir vefurinn sér þjónustu Stillingar.is til að koma til móts við þarfir þeirra sem eiga erfitt með lestur, eins og sífellt fleiri stofnanir og metnaðarfullir þjónustuaðilar gera.

Útlit vefsins er hannað af Hugsmiðjunni og sameinar það að vera traustvekjandi, létt og nútímalegt.

Hugsmiðjan óskar Lyfjastofnun til hamingju með glæsilegan vef.

Vefur Lyfjastofnunar.







Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica