Gómsætur vefur Nóatúns
Nóatún, sem er þekkt fyrir vöruúrval og gæði, leitaði til Hugsmiðjunnar eftir vefsvæði sem styddi ímynd fyritækisins á íslenskum matvörumarkaði. Hugsmiðjan er bæði stolt af því að hafa orðið fyrir valinu og afrakstrinum, hinum nýopnaða vef.
Markmið Nóatúns með nýjum vef er einkum að miðla uppskriftum og fróðleik sem styðja við vöruúrval verslananna. Til dæmis er uppskriftasafn Nóatúns mikilvægur hluti vefsvæðisins með nokkur hundruð uppskriftir. Auk þess að leita eftir uppskriftaflokkum eða tilteknu hráefni geta notendur safnað saman áhugaverðum uppskriftum og fengið sendan innkaupalista sem SMS skeyti.
Fjöldi myndbanda er á vefnum þar sem meistarakokkur Nóatúns matreiðir spennandi rétti, sýnir handtök við matreiðslu og gefur góð ráð. Ný myndbönd munu bætast við í hverri viku.
Sífellt meira líf í vefjum
Undanfarin misseri hefur áhersla á lifandi efni, umfram texta og myndir, færst í vöxt á íslenskum vefsvæðum. Aukin bandbreidd og útbreiðsla tækninýjunga á borð við Flash-myndbönd gegna þar stóru hlutverki.
Áhersla er nú lögð á innihald, notagildi og aðgengileika, í stað skreytinga líkt og var áberandi í Flash-efni í kringum aldamótin.
Notkun vefsins er þægileg leið til að veita aðgang að myndböndum, hljóðskrám og annarri virkni sem bætist við hefðbundna framsetningu í texta og kyrrmyndum.
Auk þess að búa yfir hæfileikaríkum grafískum hönnuðum og viðmótsforriturum hefur Hugsmiðjan þróað ýmsar viðbætur við Eplica vefumsjónarkerfið sem auka möguleika á gagnvirkni og fleiri nýjungar verða kynntar innan skamms.
Ef þú hefur áhuga á að bæta gagnvirkni við núverandi vef hvetjum við þig til að hafa samband við Hugsmiðjuna, við tökum alltaf vel á móti gestum og getum veitt innsýn í þá vöruþróun sem í gangi er.
