TM.is aðgengilegasti þjónustuvefur Íslands

26 okt. 2007

Áður hafði TM fengið vottun um forgang I og II sem staðfestir að vefurinn er þannig úr garði gerður blindir og sjónskertir geta notað talgervla og sérhönnuð lyklaborð með síðunni og stækkað letrið. Lesblindir geta breytt um bakgrunnslit og hreyfihamlaðir vafrað án þess að nota músina. Til viðbótar þessu höfðu verið settar inn útskýringar á allar myndir, tenglaheiti gerð skýrari og stærð og tegund viðhengja látin koma vel fram.

Þessu til viðbótar hefur Tryggingamiðstöðin nú uppfyllt þær kröfur sem gerðar eru til vottunar um forgang III, þar á meðal þjónustu við heyrnarlausa, orðalista/orðabók á vefnum, auðlesið efni og í bílprófi TM eru í boði hljóðskrár sem henta þeim sem taka prófið munnlega.

Vottun vefráðgjafarfyrirtækisins Sjá byggist á gátlistanum WAI (Web Accessibility Initiative) sem er alþjóðlegur staðall fyrir aðgengi á Netinu. Sjá hefur í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands sniðið listann að íslenskum aðstæðum og hefur hann verið prófaður af notendum með margs konar fötlun.

Sjá einnig frétt á vef Tryggingamiðstöðvarinnar.

Aðgengileg Eplica vefsvæði

Aðgengileg hönnun snýst um að gera upplýsingar skýrar og skiljanlegar fyrir alla notendur. Það gildir jafnt fyrir notendur sem lesa af skjá, notast við blindravafra (hljóð­gervla) eða hafa aðrar tæknilegar sérþarfir.

Aðgengileiki vefsvæða er hluti af þeirri samfélagslegu kurteisi sem ætlast er til af fyrirtækjum og stofnunum.

Þegar vefir eru unnir í Eplica vefumsjónarkerfi er lögð mikil áhersla á aðgengi, enda leggur Hugsmiðjan metnað sinn í að vera í fararbroddi íslenskra fyrirtækja í aðgengilegri hönnun vefsvæða. Nefna má að flest þeirra vefsvæða sem hlotið hafa aðgengisvottun Sjá og ÖBÍ í Forgangi II og III eru unninn af Hugsmiðjunni.

Áhersla Eplica á aðgengileika birtist meðal annars í eftirfarandi atriðum, sem eðlilegt er að gerð sé krafa um þegar vefumsjónarkerfi er valið.

Aðskilnaður efnis og útlits

Vefir í Eplica eru settir upp með nútímalegum stöðluðum vinnubrögðum. Í Eplica er notast er við töflulaust HTML ásamt CSS stílsniðum. Allar upplýsingar um útlit og framsetningu er að finna í CSS skjölum, óháðum efni. Þannig er auðvelt að breyta útliti án þess að breyta efnislegri framsetningu.

Innan hverrar síðu er efni raðað þannig að aðalatriðin birtist fyrst og blindravafrar (hljóð­gervlar) komist beint í meginmálið án þess að þurfa að lesa í gegnum langt veftré.

Vefsvæði sem Hugsmiðjan vinnur eru ofin þannig að innihald þeirra er aðgengilegt í öllum vöfrum - bæði eldri útgáfum algengra vafra og sérhæfðum vöfrum s.s. lesvöfrum, lófatölvum og farsímum.

Stækkanlegt letur

Notendur Eplica vefsvæða geta kosið að stækka letur síðunnar til að auðvelda sér lesturinn. Umbeðin leturstærð heldur sér svo við næstu heimsókn.

Stuðningur við Stillingar.is er innbyggður í Eplica vefkerfið. Stillingar.is er einstæð þjónusta sem gerir öllum notendum kleift að velja sér letur- og litastillingar eftir þörfum, þær óskir má samnýta á öllum þeim vefsvæðum sem heimsótt eru.





Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica