Íslensku vefverðlaunin: Sigursælir viðskiptavinir Hugsmiðjunnar
Þeir vefir sem hlutu verðlaun og Hugsmiðjan hefur unnið að eru:
Besti sölu- og þjónustuvefurinn: Iceland Express
Vefur Iceland Express fór nýlega í róttæka yfirhalningu og Hugsmiðjan sá um hina nýju útlitshönnun, að hluta byggt á eldri vef. Hugsmiðjan hefur einnig ofið vefinn og aðlagað viðmótsforritun að vefumsjónarkerfi Iceland Express. Þá hefur Hugsmiðjan unnið margvíslega ráðgjafarvinnu.
Umsögn dómnefndar:
Einn snyrtilegasti vefur landsins sem er bæði þægilegur á augað og auðveldur í notkun. Vefurinn er bæði þjónustu-og upplýsingagátt og má segja að hægt sé að finna fyrir góðri þjónustulund á vefnum. Þjónustan sem er í boði er auðleysanleg og gagnsæ og viðskiptavinum er aðstoðað vel áfram í næstu skref. Flóknir hlutir eru gerðir einfaldir. Vefurinn gefur fyrirheit um að viðskiptavinurinn sé ávallt í fyrirrúmi.
Besti fyrirtækjavefurinn: Glitnir
Hugsmiðjan hefur unnið að víðtækri viðmótsforritun fyrir Glitni, sér í lagi varðandi Heimabankann og margvíslega gagnvirkni á vefsvæðinu. Einnig hefur Hugsmiðjan séð um viðmóts- og útlitshönnun viðbóta og nýjunga á vefnum.
Umsögn dómnefndar:
Styrkleiki vefsins felst í frábærri samþættingu á tveimur meginhlutverkum fyrirtækjavefa sem mörg fyrirtæki gætu tekið sér til fyrirmyndar. Vefurinn gegnir lykilhlutverki í markaðsetningu fyrirtæksins, auk þess að vera framúrskarandi sölu- og þjónustuvefur með gríðarlegu framboði af sjálfsafgreiðsluleiðum. Strax og vefurinn fór í loftið í núverandi mynd eftir nafnaskipti fyrirtæksins fyrir tæpum tveimur árum, vakti hann verðskuldaða athygli fyrir fagmennsku og metnaðarfulla vefþróun og hafa vefstjórendur náð að halda þeim kyndli á lofti allar götur síðan.
Besti vefur í almannaþjónustu: Veður.is
Vefur Veðurstofunnar er unninn í Eplica og er hönnun, viðmótsforritun, ráðgjöf og ýmis sérforritun unnin af Hugsmiðjunni. Einnig eru margvíslegar samtengingar upplýsingakerfa við Eplica vefumsjónarkerfið unnar í samvinnu Hugsmiðjunnar og Veðurstofunnar.
Umsögn dómnefndar:
Sjaldan hefur sést jafn vel heppnuð breyting á vef. Allt er til sóma, viðmótið er vel hannað, nytsamlegt og aðgengilegt sem gerir öllum kleyft að skoða vefinn. Einnig er vefurinn mjög gagnvirkur og hægt að skoða allt það nýjasta tengt veðurfari, mengun, jarðskjálftum og fleiru ... besti vefur í almannaþjónustu er Vedur.is.
Hugsmiðjan er sérlega stolt af þeirri staðreynd að af þeim fimm vefsvæðum sem tilnefnd voru í þessum flokki eru fjögur unnin af Hugsmiðjunni og sett upp í Eplica. Þessi fjögur vefsvæði eru:
Besti afþreyingarvefurinn: visir.is
Hugsmiðjan vann vefun á nýju útliti og aðstoðaði við að aðlaga þá vefun að kerfum visir.is. Áhersla var lögð á að nýta reynslu Hugsmiðjunnar í aðgengilegri vefun og í endurnýtanlegum kóða sem nýtist í fjölmörgum birtingarmyndum á þessum umfangsmikla vef.
Umsögn dómnefndar:
Vefurinn sem hlýtur verðlaunin Afþreyingarvefur ársins 2007 er í senn fræðandi, áhugaverður, yfirgripsmikill og vinsæll en hefur um leið mikið afþreyingargildi. Vefurinn inniheldur allt sem góður afþreyingarvefur þarf að hafa, vel unnin texta, gott myndmál, útvarpsefni, sjónvarpsefni, sem og sí aukna aðkomu notenda, sem er eitt af því sem skiptir sífellt meira máli hjá framsæknum vefjum í dag. Vefurinn verður að teljast inni í daglegum rúnti íslenskra netverja enda einn af fjölsóttustu vefjum landsins. Vefurinn er einnig einn af eldri vefjum landsins þó svo að nafn hans sé miklum mun eldra og hefur tengst fjölmiðlun allt síðan 1910 þegar blað með sama nafni var stofnað af Einari Gunnarssyni. Þetta er að sjálfsögðu Vísir.is
Hugsmiðjan óskar öllum vinningshöfum og þeim sem tilnefndir voru til hamingju með árangurinn og hlakkar til áframhaldandi árangursríks samstarfs.
Sjá frekari upplýsingar um verðlaunin á vef SVEF.
