Fleiri nýir vefir: Akureyri heimsótt, afl Landsvirkjunar og Samtök fjármálafyrirtækja
Samtök fjármálafyrirtækja
Nýr upplýsingavefur Samtaka Fjármálafyrirtækja er hannaður og uppsettur af Hugsmiðjunni í Eplica vefkerfi.
Samtök fjármálafyrirtækja er, eins og nafnið gefur til kynna, heildarsamtök fjármálafyrirtækja á Íslandi. Á lista aðildarfélaga er að finna fjölmarga viðskiptavini Hugsmiðjunnar, enda hefur verið mikið um að fyrirtæki í þessum geira falist eftir þjónustu okkar undanfarin misseri.
Visit Akureyri
Visit Akureyri er kynningarvefur Akureyrarbæjar, ætlaður fyrir erlenda jafnt sem innlenda ferðamenn. Á vefnum eru upplýsingar um það sem er um að vera í bænum og gegnir atburðadagatal Eplica stóru hlutverki. Vefurinn er hannaður og uppsettur af Hugsmiðjunni í Eplica, líkt og Akureyri.is.
Landsvirkjun Power
LV Power hóf starfsemi 1. janúar 2008. Verkefni LV Power felast einkum í undirbúningi, almennum rannsóknum, hönnun og byggingu jarðvarma- og vatnsaflsvirkjana fyrir Landsvirkjun og raforkukerfa fyrir Landsnet auk sérfræðiráðgjafar fyrir dóttur- og hlutdeildarfélög LV Power.
Tilkomumiklar ljósmyndir af verkefnum Landsvirkjunar eru áberandi í útlitshönnun vefsvæðisins sem unnin er af Hugsmiðjunni og vefurinn er uppsettur í Eplica vefumsjónarkerfinu.
