Nokkrir nýlegir vefir: Þjóðminjasafn, Tanni og Flug

10 des. 2007

Þjóðminjasafnið

Nýr vefur Þjóðminjasafnsins er hannaður af Hugsmiðjunni og unninn í Eplica vefumsjónarkerfinu. Mikil natni hefur verið lögð í útlitshönnun vefsins, þar sem munir og myndir í eigu safnsins gegna veigamiklu hlutverki. Hinn nýi vefur er mjög viðamikill og geymir fjölmarga fróðleiksmola auk grunnupplýsinga um Þjóðminjasafnið og starfsemi þess.

Tanni Auglýsingavörur

Á nýjum vef Tanna er mest áhersla lögð á vörulista fyrirtækisins, enda er sala auglýsingavara sérsvið þess.

Þar sem litir gegna yfirleitt stóru hlutverki þegar fyrirtæki eru að velja sér auglýsingavörur, hefur verið sérforrituð mjög spennandi viðbót við vörukerfi Eplica sem býður upp á leit eftir litum og litaafbrigðum.

Við útlitshönnun vefsins hefur verið lögð áhersla á að myndir af vörunum fái að njóta sín og að þægilegt sé að "versla með augunum".

Ekki er boðið upp á bein kaup á vefnum, enda fylgir það eðli pantana hjá Tanna að heppilegast er að þær fari fram í gegnum söluráðgjafa. Vörulistinn nýtist hins vegar bæði kaupendum og söluráðgjöfum í pantanaferlinu.

Starfsmenn Tanna uppfæra sjálfir allar vöruupplýsingar í vörukerfinu með einföldum hætti.

Flugvirkjafélag Íslands

Vefur Flugvirkjafélags Íslands er hannaður af Hugsmiðjunni og uppsettur í Eplica vefkerfinu.

Hluti vefsvæðisins er aðeins opinn innskráðum félagsmönnum og þar er meðal annars að finna spjallborð félagsins með umræðum um það sem brennur á félagsmönnum.

Við uppsetninguna eru nýttir aðgangsstýringarmöguleikar Eplica auk sveigjanleika kerfisins í tengingum við margvísleg upplýsingakerfi.





Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica