Enn fjölgar Eplica vefsvæðum

10 mar. 2008

Nýr vefur Akureyrarbæjar

Akureyrarbær hefur notað Eplica vefkerfið fyrir vefinn Akureyri.is síðan 2004. Vefurinn fékk nýlega róttæka andlitslyftingu og má næstum segja að um sé að ræða glænýjan vef (sem byggir á traustum grunni).

Akureyri.is er samfléttaður upplýsingavef um Akureyri fyrir ferðamenn, visitakureyri.is og nýtir fjölmarga af möguleikum Eplica kerfisins. Þar má meðal annars nefna að viðburðadagatal Akureyrar er eitt það metnaðarfyllsta á íslensku vefsvæði og heldur utan um alla helstu viðburði á vegum sveitarfélagsins og annarra.

Útlitshönnun vefsvæðisins er unnin af hönnuðum Hugsmiðjunnar.

Vefur Portus Group

Eignarhaldsfélagið Portus hf er félag um byggingu og rekstur Tónlistarhúss og Ráðstefnumiðstöðvar í Reykjavík. Upplýsingavefur um þetta gríðarstóra og metnaðarfulla verkefni var nýlega opnaður á vefslóðinni portusgroup.is.

Strax um opnunarhelgina var vefurinn notaður til að safna tillögum að nafni á bygginguna og bárust rúmlega fjögurþúsund tillögur.

Útlitshönnun vefsins er unnin af hönnuðum Hugsmiðjunnar.

Þekkingartorg á heilbrigðissviði

Þekkingartorg á heilbrigðissviði er aðgangsstýrt netsvæði sem samanstendur af verkefna- og upplýsingamiðlun.

Torginu er ætlað að tengja sérfræðinga saman í gegnum vefstýrða verkefnamiðlun. Þannig geta t.d. stofnanir miðlað verkefnum og kallað eftir þekkingu til að leysa þau og háskóladeildir fengið verkefni fyrir nema og/eða starfsmenn sína.

Útlitshönnun vefsins er unnin af hönnuðum Hugsmiðjunnar og öll aðlögun Eplica kerfisins að sérþörfum Þekkingartorgsins er útfærð og unnin af sérfræðingum Hugsmiðjunnar.

Keilir

Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, byggir upp háskólasamfélag í gömlu herstöðinni og leiðir þar saman fyrirtæki og háskóla, þekkingu og fjármagn.

Félagið var stofnað vorið 2007 og vísar heiti þess til stöðu Íslands í alþjóðavæddum heimi og þess markmiðs félagsins að byggja upp þekkingu, kennslu og rannsóknir á háskólastigi í alþjóðlegu samhengi.

Vefurinn keilir.net var nýlega opnaður í Eplica vefkerfi frá Hugsmiðjunni.

Hugsmiðjan sá um viðmótsforritun og uppsetningu, en útlitshönnun var í höndum Jónsson & Le´Macks.





Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica