Nýr vefur MP Fjárfestingarbanka
Nýr vefur MP
Um nokkurt skeið hefur verið unnið að endurnýjun vefsins og í dag opnar MP Fjárfestingarbanki nýjan og breyttan vef. Ýmsar nýjungar eru á nýja vefnum, meðal annars má nefna að mögulegt er að skoða yfirlit í öllum OMX-kauphöllunum, en þær eru á Íslandi, í Stokkhólmi, Kaupmannahöfn, Helsinki, Vilníus, Ríga og Tallin. Þar er einnig að finna helstu vísitölur þessara markaða.
Undir liðnum "markaðir" má einnig finna áhugaverðan hlekk sem ber heitið "fróðleikur". Þar er orðabók með fjármálahugtökum, hægt að fletta upp hagtölum í ýmsum Evrópulöndum þar sem áhugavert hefur verið að fjárfesta og þar er einnig að finna tenglasafn með áhugaverðum vefsíðum úr fjármálaheiminum.
MP Fjárfestingarbanki hóf rekstur á verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum síðastliðið haust. Nú þegar eru komnir tveir fjárfestingarkostir: Peningamarkaðssjóður og verðtryggður fyrirtækjaskuldabréfasjóður. Nánari upplýsingar um sjóðina er að finna undir liðnum "MP Sjóðir". Einnig er MP Fjárfestingarbanki í samstarfi við austurríska bankann Raiffeisen Capital Management og Sparinvest í Luxembourg, sem bjóða upp á fjölbreytilegt úrval af verðbréfasjóðum.
Fjármálaheimurinn breytist hratt og nýjungar í upplýsingatækni koma ört fram á sjónarsviðið. Vefur MP Fjárfestingarbanka er þar af leiðandi í stöðugri þróun og ávallt verður kappkostað að viðskiptavinir bankans fái sem gleggstar upplýsingar á sem auðveldastan hátt. Öflug upplýsingagjöf auðveldar skynsamlegar ákvarðanir í fjárfestingum.
MP Fjárfestingarbanki hefur frá upphafi notað Eplica vefumsjónarkerfið og nýtt sér þjónustu Hugsmiðjunnar. Nýja útlitið er t.d. hannað hjá Hugsmiðjunni. MP nýtir sér ýmis aukakerfi Eplica, t.d. gagnatogarann til að birta gögn frá M5 og Ajax-virkni í starfsmannalistanum þar sem hægt er að skoða ítarlegri upplýsingar um starfsmenn á skemmtilegan hátt.
