Nýr framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar
Nýr framkvæmdastjóri
Ragnar hefur verið framkvæmdastjóri Netsambands undanfarin ár og m.a. unnið að fyrirtækjaráðgjöf hjá Kontakt ehf. sl. ár.
"Hugsmiðjan er öflugt fyrirtæki á sínu sviði og það er spennandi tækifæri fyrir mig að vinna með frábæru starfsfólki að framtíðaruppbyggingu fyrirtækisins", segir Ragnar Marteinsson.
"Ragnar stýrði þjónustudeild Opinna kerfa í áratug en hann var með HP, síðar OK frá byrjun og vann einnig fyrir HP í Danmörku í nokkur ár. Þá var Ragnar framkvæmdastjóri Teymis ehf. (Oracle á Íslandi) á árunum 2003-2005. Það er Hugsmiðjunni mikilvægt að fá nú að njóta krafta hans sem framkvæmdastjóra. Það bíða krefjandi verkefni fyrir kröfuharða viðskiptavini og við væntum mikils af störfum hans", segir Ingi Þór Hermannsson , stjórnarformaður Hugsmiðjunnar.
Ragnar er 51 árs, kvæntur Sigríði Önnu Guðjónsdóttur verkefnastjóra hjá SVÞ og eiga þau þrjú börn.
Þórarinn Friðjónsson starfar áfram fyrir Hugsmiðjunna á vettvangi stjórnar og er eignarhlutur hans í fyrirtækinu óbreyttur.
