Hugsmiðjan (Eplica) leitar að viðmótsforriturum

9 okt. 2009

Umsækjendur þurfa hvoru tveggja að geta ofið útlit vefsvæða með CSS ásamt því að geta forritað lifandi viðmótsvirkni í Javascript. Yfirgripsmikil þekking á nýjustu veftækni er lykilatriði.

Starfsreynsla, sköpunargáfa, útsjónarsemi, öguð vinnubrögð og brennandi áhugi á faginu eru kostir sem jafnframt verður horft til. Reynsla af Flash, PHP, Python, Java, ASP eða öðru forritunarumhverfi er einnig kostur.

Hugsmiðjan er öflugt og traust fyrirtæki og hefur síðustu 8 ár verið þekkt fyrir að hafa yfir að ráða einu öflugasta teymi viðmótsforritara á Íslandi. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi og duglegu starfsfólki bjóðast ótal tækifæri til nýsköpunar og sjálfsnáms.

Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Hugsmiðjunnar, eða senda umsókn á umsokn@hugsmidjan.is ásamt ferilskrá.


Hafðu samband

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:



Leita á vefnum



Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica