Samfélagsvefur Hugsmiðjunnar 2010

17 maí 2010

Árlega gefur Hugsmiðjan fullbúinn vef til félagasamtaka sem vinna að þjóðfélagslega mikilvægum verkefnum. Í því felst að við gefum Eplica vefumsjónarkerfið, hönnun, forritun, uppsetningu og aðra vinnu sem þarf til að opna fullbúinn vef. Meðal samtaka sem fengið hafa vef af þessu tagi á undanförnum árum má nefna Götusmiðjuna, Íslandsdeild Amnesty International, Mannréttindaskrifstofu Íslands og fleiri.

Auglýst er eftir umsóknum um Samfélagsvef Hugsmiðjunnar 2010.

Umsækjendur þurfa að vera félagasamtök sem vinna að góðgerðarstörfum og eru ekki rekin í hagnaðarskyni. Samfélagsvefurinn er ekki ætlaður fyrir verkefni á vegum ríkis, sveitarfélaga eða trúfélaga.

Í umsóknunum þarf að koma fram stutt lýsing á hlutverki samtakanna, sögu þeirra og framtíðaráformum, auk þess sem því verði lýst hvernig vefurinn sem sótt er um muni koma samfélaginu til góða. Við mat á umsóknum verður sérstaklega horft til hlutverks og mikilvægis nýs vefjar fyrir starfsemi samtakanna.

Skilmálar
  • Félagasamtök sem vinna að góðgerðarstörfum, ekki rekin í hagnaðarskyni
  • Ekki ætlað fyrir verkefni á vegum ríkis, sveitarfélaga eða trúfélaga

Horft til

  • Mikilvægis vefsvæðis í starfi
  • Fyrri sögu og framtíðaráætlana

Umsóknarfrestur

Skriflegum umsóknum skal skilað til Hugsmiðjunnar fyrir 5. júní 2010 - annað hvort í tölvupósti á netfangið margeir@hugsmidjan.is eða bréfleiðis (Snorrabraut 56, 105 Reykjavík).





Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica