Karitas valinn Samfélagsvefur Hugsmiðjunnar 2010

27 ágú. 2010

Á dögunum auglýsti Hugsmiðjan eftir umsóknum um Samfélagsvef Hugsmiðjunnar en einu sinni á ári gefum við fullbúinn vef til félagasamtaka sem vinna að þjóðfélagslega mikilvægum verkefnum.

Að þessu sinni varð Karitas, hjúkrunar- og ráðgjafaþjónusta fyrir valinu, en farin var sú leið að láta alla starfsmenn Hugsmiðjunnar kjósa milli þeirra umsókna sem bárust.

Karitas er hjúkrunar- og ráðgjafaþjónusta fyrir fólk með langvarandi sjúkdóma samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um líknarmeðferð og umönnun langveikra. Þjónusta er veitt allan sólahringinn og endurgjaldslaust.

Markmið Karitas er að styðja við þá sem eru haldnir langvinnum sjúkdómum þannig að þeir geti betur tekist á við daglegt líf sitt þrátt fyrir þær breytingar og takmarkanir sem sjúkdómurinn hefur í för með sér.

Karitas mun fá að gjöf frá Hugsmiðjunni Eplica vefumsjónarkerfið, hönnun, forritun, uppsetningu og aðra vinnu sem þarf til að opna fullbúinn vef. Meðal samtaka sem áður hafa fengið vef af þessu tagi má nefna Götusmiðjuna, Íslandsdeild Amnesty International, Mannréttindaskrifstofu Íslands og fleiri.

Að endingu vill Hugsmiðjan þakka öllum þeim sem sóttu um styrkinn, en við fengum margar frábæra umsóknir og vonumst til þess að þeir sem ekki urðu fyrir valinu þetta árið sæki aftur um á því næsta.





Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica