• Lausn

Lausn til framtíðar

Vel yfir fjögurhundrað vefsvæði hafa nú þegar verið sett upp í Eplica og innan Hugsmiðjunnar er til gríðarleg reynsla og þekking sem skilar sér beint til viðskiptavina.

Margs konar viðbætur við Eplica vefkerfið og sérlausnir eru í stöðugri þróun sem tekur mið af þeirri þróun sem á sér stað í alþjóðlegum hugbúnaðarheimi. Eplica getur tengst fjölda hugbúnaðarkerfa og verið sett upp í margs konar rekstrarumhverfi, sem skilar sér í lægri kostnaði fyrirtækja.

Framtíðarlausn

Eplica vinnur með mismunandi gagnagrunnum, vefþjónum og stýrikerfum. Til dæmis getur Eplica tengst öllum algengustu gagnagrunnum, hvort sem er frá Microsoft, Oracle eða open source lausnum á borð við MySQL.

Opið umhverfi Eplica byggir á opnum stöðlum og gerir kleift að skipta um útlit, skrifa eigin viðbætur og flytja gagnagrunna með einföldum hætti. Fyrirtæki læsast ekki inni í ákveðnu rekstrarumhverfi vegna krafna til búnaðar og sveigjanleikinn er mikill.

Sérfræðiþekking, reynsla okkar og stöðug þróun tryggja að Eplica vefkerfið tekur mið af þeim breytingum og nýjungum sem eiga sér stað í upplýsingaheiminum.

Samþættingarmöguleikar Eplica gera kerfið að ákjósanlegu þróunarumhverfi fyrir hvers kyns veflausnir. Opin hönnun, stuðningur við opna staðla og lausnasafn sem er aðgengilegt fyrir hugbúnaðarþróun, stuðla að gríðarlegum tímasparnaði og betri veflausnum.

Fullbúið Eplica kerfi stenst væntingar kröfuhörðustu notenda.


Hafðu samband

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica