Metnaðarfullir vefir
Margir af metnaðarfyllstu vefum Íslands keyra í Eplica. Við hjá Hugsmiðjunni leggjum metnað í að vefir okkar standist kröfur notenda og viðskiptavina og að þeir séu glæsilegir í útliti, einfaldir í notkun og aðgengilegir öllum. Þessi metnaður á jafnt við hönnun, uppsetningu og frágang.
Viðmót og ímynd
Vefhönnun snýst um fleira en útlitið, áferðarfallegur vefur er gagnslaus ef viðskiptavinir geta ekki nýtt sér hann vegna slælegrar viðmótshönnunar.
Í allri okkar hönnun leggjum við metnað í að sameina hvort tveggja; viðmót sem er skýrt og skilvirkt og vandað útlit sem styrkir ímynd viðskiptavinarins. Vefsvæði er lykilþáttur í ímynd fyrirtækja og mikilvægt að góð vefhönnun tryggi samspil fallegs útlits og notagildis.

