Atburðadagatal
Í Eplica er bæði einfalt og þægilegt að halda utan um hvers kyns tímatengda viðburði (t.d. fundi, námskeið eða jafnvel matseðil dagsins).
Skráning og utanumhald viðburða fer fram í sama þægilega viðmóti og önnur efnisvinnsla í Eplica, en við bætast valkostir varðandi tímasetningar. Hægt er að skrá upphaf og lok viðburða, reglur fyrir endurtekningu (t.d. alla mánudaga) og margt fleira.
Yfirlit yfir viðburði getur verið sett fram sem dagatal eða listi eftir því hvað hentar hverju sinni.

