Kannanir
Kannanakerfi Eplica er sjálfstætt kerfi, sem er ætlað fyrir viðhorfskannanir, umsóknir eða fleira í þeim dúr. Kerfið er hannað í samvinnu við Rannís og uppfyllir þeirra gæðakröfur.
Í kerfinu setur stjórnandi upp spurningar og raðar þeim í eyðublöð. Hægt er að setja upp leiðbeiningartexta og búa til reglur fyrir framvindu, þannig að tiltekin svör við ákveðnum spurningum leiði af sér framhaldsspurningar sem annars kæmu ekki fram. Einnig er hægt að tímastilla eyðublöð, þannig að hvorki sé hægt að skoða þau né fylla út fyrir (eða eftir) ákveðinn tíma.
Þátttakendur (svarendur) fá sendar upplýsingar um notendanafn og lykilorð sem þeir geta notað til að fara inn á sitt eigið lokaða svæði. Þátttakendur geta vistað stöðu á hálfútfylltri könnun og komið aftur að henni síðar.
Kannanakerfið villuprófar innslátt jafnóðum auk þess að ráða við þrívíðar spurningar og samlagningarspurningar (sem dæmi má nefna tilvik þar sem samtala af ákveðnum tölum þarf að ná tilteknu gildi t.d. 100%).
Stjórnendur geta fylgst jafnóðum með svörum þátttakenda og m.a. fengið yfirlit yfir aðila sem ekki hafa svarað, til að senda ítrekun í formi tölvupósts eða bréfs. Niðurstöður er hægt að flytja yfir í t.d. Excel fyrir frekari úrvinnslu.

