Bókunarkerfi
Bókunarkerfi Eplica gerir notendum kleift að bóka hvers kyns "einingar" á ákveðnum tímum. Til dæmis má nota bókunarvélina til að bjóða notendum að bók afnot af fundarherbergi, viðtalstíma hjá ráðgjafa eða viku í sumarbústað.
Bókunarvélin heldur utan um þær tímasetningar sem í boði eru og hægt er að tilgreina hvort greiðsla á að fylgja bókun.
Hægt er að keyra upplýsingar út úr bókanakerfinu, t.d. í Excel og hægt er að taka við greiðslu í gegnum greiðslugátt Skýrr eða með svokölluðum öruggum greiðslusíðum kortafyrirtækjanna.
Bókunarvél er viðbótareining sem stillt er sérstaklega að þörfum hvers viðskiptavinar.

