Stillingar
Stillingar.is er einföld og þægileg vefþjónusta fyrir eigendur vefsvæða sem vilja koma til móts við þarfir fólks sem á erfitt með að lesa, t.d. vegna sjónskerðingar eða lesblindu.
Vefþjónustan hjálpar fólki sem á erfitt með að lesa vefsíður (t.d. vegna lesblindu eða sjónskerðingar) að tilgreina hvernig texta því þykir þægilegast að lesa. Hægt er að velja uppáhalds lita-samsetningu, stafa-gerð, letur-stærð, bil á milli lína og orða, og fleiri slík atriði. Þegar notandinn er búinn að skrá sínar stillingar, þá miðlar Stillingar.is þeim sjálfkrafa til þeirra vefsvæða sem biðja um þær.
Þjónustan er seld í áskrift.

