• honnunarhandbok

Hönnunarhandbók

Hugsmiðjan / Eplica hefur undanfarin misseri byggt upp HTML hönnunarhandbók ætlaða fyrir forritara, kerfishönnuði og síðusmiði. Markmiðið er að staðla vinnuaðferðir og tryggja að þær veflausnir sem unnar eru uppfylli helstu kröfur um gott aðgengi, einfalda notkun, sveigjanleika í útliti og ekki síst að ýta undir og auðvelda endurnýtingu vefviðmótseininga.

Handbókin auðveldar einnig nýjum starfsmönnum eða utanaðkomandi verktökum að temja sér "rétt verklag".

Hönnunarhandbókin er afurð margra ára markvissrar vinnu Hugsmiðjunnar við að hámarka sveigjanleika, fyrirsjáanleika og endurnýtingu í okkar eigin lausnum, og við fylgjum þessari handbók sjálfir í allri okkar þróun fyrir viðskiptavini.

Handbókin einskorðast alls ekki við Eplica kerfið og nýtist við alla vefforritun. Aðilar á borð við EFTA Surveillance Authority, Tryggingarstofnun Ríkisins, Íslandsbanka, Kaupþing og VÍS hafa notfært sér handbókina og jafnframt notið aðstoðar okkar við hönnun sérsniðinna lausna.

Með því að gefa handbókina út í vefformi er tryggt að henni er reglulega viðhaldið og að áskrifendur geta komist í hana hvar sem er í heiminum.

Aðgangur að hönnunarhandbók er með áskriftarfyrirkomulagi.





Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica