Námskeiðskerfi
Eplica námskeiðskerfi byggir á viðburðaskráningu Eplica, og bætir við möguleikum varðandi skráningu þátttakenda á viðburði og utanumhaldi um greiðslur.
Þátttakendur geta skráð sig sjálfir á vefnum. Kerfið heldur utan um fjölda þátttakenda og setur á biðlista þá sem ekki komast inn. Ef krafist er greiðslu getur greiðandi verið annar en þátttakandi (t.d. ef fyrirtæki greiðir fyrir þátttöku starfsmanna).
Þátttakendur er hægt að flokka (t.d. félagsmenn/ekki félagsmenn, fagmenn/leikmenn) og er hægt að bjóða uppá mismundi upplýsingar og skráningarform eftir þessari flokkun.
Póstlisti er tengdur kerfinu og er hægt að senda tölvupóst á skráða þáttakendur, t.d. til að senda þeim ítargögn eða upplýsingar um breytingar. Einnig er hægt að keyra upplýsingar út úr kerfinu, t.d. í Excel.
Hægt er að taka við greiðslu í gegnum greiðslugátt Skýrr eða með svokölluðum öruggum greiðslusíðum kortafyrirtækjanna.
Námskeiðskerfi er viðbótareining sem stillt er sérstaklega að þörfum hvers viðskiptavinar.

