Vefverslun
Vefverslun Eplica (Eplica Store) býr yfir öllum helstu möguleikum sem þörf er á. Hægt er að nota hana sjálfstæða, eða tengja við fyrirliggjandi vörukerfi.
Vefverslun Eplica byggir á hefðbundinni uppröðun vara í vöruflokka. Hægt er að hafa vöruflokka inni í yfirflokkum og engar tæknilegar takmarkanir á dýpt þeirra. Sami vöruflokkur getur verið birtur á ólíkum stöðum í veftrénu.
Stök vara er birt með hefðbundnum hætti; með texta, myndum og upplýsingum um vöruafbrigði (t.d. liti og stærðir). Hverri vöru geta fylgt margar myndir og hver mynd verið til í mörgum stærðum.
Ef notandi er innskráður er hægt að birta sérstök verðkjör fyrir hverja vöru.
Eplica Store getur unnið með vöruafbrigði á borð við stærðir og liti.
Notandi getur sett vörur í körfu, skoðað yfirlit yfir körfu og breytt fjölda vara í körfu. Ef notandi er innskráður getur hann vistað körfu og lokið pöntun síðar.
Allar aðgerðir framkvæmdar í Eplica Store eru skráðar í kerfisannála. Þar með talið allar birtingar einstakra vara og aðgerðir auðkenndra (innskráðra) notenda. Skráð er hvaða vörur eru settar í körfu og hvaða körfur er greitt fyrir.
Undantekning á þessu er þó að ekki eru skráðar neinar greiðslukortaupplýsingar í kerfisannála.

