Aðgangsstýringakerfi
Stýring á aðgangi og réttindum notenda er kjarnavirkni í Eplica. Hægt er að stýra bæði les- og skrifréttindum, þannig að krafist sé innskráningar notenda til að geta lesið ákveðnar síður eða flokka, auk þess sem stilla má nákvæmlega hvaða réttindi tiltekinn notandi hefur til að gera breytingar á efni vefsins.
Aðgang er hægt að skilgreina fyrir einstaka notendur, fyrir hópa (t.d. "ritstjórar") og ákveðin hlutverk (t.d. "fréttaritari erlendra frétta"). Með aðgangsstýringum fylgir einfalt útgáfuferli; vissir notendur geta haft réttindi til að skrifa efni, en geta ekki birt það á vefnum án samþykkis ritstjóra.
Aðgangsstýring er kjarnavirkni Eplica og fylgir með öllum útgáfum kerfisins.

