Snjallir vefir
Snjöll vefsvæði sem aðlaga sig að ólíkum skjástærðum
Það er enginn sérstakur "mobile" vefur - vefurinn er fyrir alla.
Við hjá Hugsmiðjunni höfum tekið upp nýja nálgun varðandi hönnun vefsvæða fyrir smátölvur og farsíma: Alveg sama hvernig tölvu þú notar - vefurinn á alltaf að vera sá sami.
Það eina sem breytist er útlitið:
- Á hefðbundnum tölvuskjá birtist vefsíðan eins og áður.
- Á millibreiðum skjá (t.d. spjaldtölvu eða lítilli fartölvu) mjókka dálkar eilítið og þjappast saman.
- Á litlum skjá (t.d. farsíma) fer nánast allt efni í einn dálk. Útlit er einfaldara og myndefni minna.
...en vefslóðirnar eru óbreyttar, textinn er eins, valmöguleikarnir og tækifærin eru þau sömu.
(Mínar tryggingar hjá VÍS, stjornur.is og Pagekite.net eru dæmi um vefi sem við unnum með þessum hætti.)
Þarfir notenda eru alltaf þær sömu - óháð skjástærð
Gamla lumman um að farsímanotendur hljóti að vera á ferðinni og tölvunotendur kyrrstæðir er einfaldlega röng. Fólk grípur farsímann sitjandi í sófa og fartölvunotendur nettengjast yfir 3G á leið milli staða.
Það sem allir vilja, óháð tækjabúnaði, er það sama:
- Lipur þjónusta og gagnlegar upplýsingar.
- Skýran vef með skilvirkum aðgerðum og skýrri forgangsröðun efnisþátta.
- Fallegan vef sem virkar hratt og vel!
Skjáplássið er það eina sem hægt er að ganga út frá að sé ólíkt með notendum sem heimsækja vef í tölvu annars vegar og farsíma hins vegar.
Við byrjum að hugsa "smátt" - einblínum á kjarnann
Besta leiðin til að skipuleggja og forgangsraða efni á góðum vef, er að byrja að hugsa út frá skjástærð farsíma/lófatölvu. Það laðar fram miskunnarlausa forgangsröðun og greiningu á raunverulegum þörfum viðskiptavinarins.
Þegar sá grunnur liggur fyrir er björninn nánast unninn.
Þá er bara að ákveða hvort einhverju (og þá hvaða) aukaefni eigi að bæta við á stærstu skjáunum. Slíku efni má annað hvort bæta neðarlega á síðurnar eða forrita þannig að smátækjanotendur smelli á hnapp/link til að birta það.
Því næst er hefðbundin útlitshönnun fyrir vefinn, með þeirri nýbreytni að samhliða er hugað að útliti vefsins allt niður í lófastærð.
Þetta snýst um hagkvæmni og gott aðgengi
Við trúum því að þetta sé eina rétta nálgunin, bæði tæknilega og hugmyndafræðilega, fyrir nær öll vefsvæði og nær allan vefhugbúnað. (Stöku vefir og vefforrit geta vissulega þurft sérstaka farsímaútgáfu.)
Við vitum að farsíma- og smátækjanotkun mun aukast gríðarlega og fólk krefst þess að fá nákvæmlega sömu þjónustu, óháð því hvers konar tölvu- eða tækjabúnað það er með.
Í augum Hugsmiðjunnar er þessi nálgun í senn skynsamleg og hagkvæm, en jafnframt órjúfanlegur hluti hugsjónar okkar um frábært aðgengi að því sem veraldarvefurinn hefur að bjóða, fyrir alla.
Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar um það hvernig sérfræðingar Hugsmiðjunnar geta hjálpað þér að gera vefinn þinn enn betri.

