Sérhannaðir vefir
Flestir viðskiptavinir Hugsmiðjunnar kjósa að láta sérhanna útlit og framsetningu vefja. Í sérhönnuðu útliti felst ekki aðeins "branding" (litir og myndefni) heldur er öll uppbygging og framsetning byggð á sérkröfum viðkomandi vefsvæðis og markhópum þess.
Þegar um sérhönnun er að ræða vinna viðmótssérfræðingar með spurningar á borð við:
- Hverjir eru mikilvægustu markhópar vefsins?
- Hvaða aðgerðir viljum við að þeir framkvæmi á vefnum (fræðast, panta, kaupa)?
- Hvernig styður viðmótið við þær aðgerðir og auðveldar notendum að ljúka ætlunarverki sínu?
Hvað felst í sérhönnun?
Hönnunarferlið tekur alltaf mið af hverju verkefni fyrir sig, en í stuttu máli má segja að dæmigert hönnunarferli byggi á eftirfarandi vinnuliðum:
- Greining á markhópum, aðgerðum þeirra og forgangsröðun.
- Skissuferli þar sem unnar eru grófar tillögur að uppröðun efnisatriða á helstu síðum vefsins.
- Ítarleg útlitshönnun forsíðu og helstu lykilsíðna.
- Viðmótshönnun annarrar sérvirkni eftir því sem við á.
- Vefforritari aðlagar framsetningu eininga og efnis að hinu samþykkta útliti.
Öll skrefin eru unnin í samvinnu við viðkomandi viðskiptavin og afrakstur hvers skrefs samþykktur áður en farið er í það næsta.
Fyrir hverja er sérhönnun?
Í stuttu máli má segja að sérhönnun eigi við þá vefi sem hafa önnur markmið en að vera "dæmigerðir upplýsingavefir".
Þetta á til dæmis við um flestalla gagnvirka vefi, hvort sem sú gagnvirkni einskorðast við vefinn sjálfan eða byggir á samskiptum við önnur kerfi.
Sérhönnun hentar einnig fyrir þá viðskiptavini sem leggja mikið upp úr ímyndarmálum og vilja því síður samnýta staðlaða framsetningu með öðrum vefsvæðum.
Hvaða aðrir möguleikar eru í boði?
Hugsmiðjan býður einnig upp á svokallaða staðalvefi (link) þar sem framsetningin byggir á fyrirfram hönnuðum útlitseiningum sem raða má saman og aðlaga eftir þörfum. Breytileikinn felst þá einkum í uppröðun eininga og aðlögun á litaskema.
Rétt er að nefna að hægt er að blanda þessum möguleikum saman, til dæmis með því að byggja vef á staðallausnum en vinna að auki sérhönnun vegna framsetningar forsíðu eða gagnvirkni á borð við vefverslun.
Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar um það hvernig sérfræðingar Hugsmiðjunnar geta hjálpað þér að gera vefinn þinn enn betri

