• templatevefir

Staðalvefir

Til þess að gera fleirum kleift að opna vefi í Eplica vefumsjónarkerfinu býður Hugsmiðjan svokallaða staðalvefi.

Staðalvefir („template vefir“) byggja á fyrirfram hönnuðum útlitseiningum sem raða má saman og aðlaga eftir þörfum. Þessi nálgun gerir kleift að opna vefsvæði með litlum tilkostnaði í þeim tilvikum þar sem ekki er krafist sérhannaðs útlits.

Fyrir hverja eru staðalvefir?

Eplica staðalvefur hentar þeim sem vilja nýta sér þægindi og áreiðanleika Eplica kerfisins, en hafa ekki þörf fyrir sérhannað útlit. Með því að velja úr og raða saman tilbúnum útlitseiningum er engu að síður hægt að móta framsetningu að þörfum hvers og eins.

Ekkert stendur í vegi fyrir því að vefur sem hefur göngu sína sem staðalvefur taki síðar upp nýtt og sérhannað útlit. Staðalvefir eru því góður kostur fyrir þá sem vilja gera sig sýnilega á vefnum og vera frá upphafi í einu öflugasta vefumsjónarkerfi sem í boði er á markaðnum.

Hvaða möguleikar eru í útlitsbreytingum?

Grunnverð Eplica staðalvefs miðast við að byggt sé á tilbúnum útlitseiningum og litaskema vefsins aðlagað að hverju verkefni fyrir sig.

Innifalið í grunnverðinu er einnig uppsetning veftrés og þeirra eininga sem hönnunin gerir ráð fyrir.

Ef óskað er eftir frekari útlitsaðlögun gerum við tímaáætlanir í slíkt. Við getum einnig tekið að okkur að vinna myndefni fyrir vefinn og/eða kaupa myndefni í myndabönkum.

Hvaða útgáfa Eplica er að baki staðalvefjum?

Staðalvefir byggja á fullbúnu Eplica kerfi. Hagstætt verðið byggir einungis á því að minnka kostnað vegna frumhönnunar, ekki því að takmarka virkni kerfisins.

Allar þær virknieiningar sem þörf er á fyrir dæmigerða vefi eru innifaldar í uppsetningu staðalvefs, en á sama hátt og fyrir aðra Eplica vefi stendur til boða mikið úrval viðbótareininga ef þörf er á.

Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar um það hvernig sérfræðingar Hugsmiðjunnar geta hjálpað þér að gera vefinn þinn enn betri





Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica