• nyjungar2

Gott verður betra

Eplica 2.0

Nýr ritill

Breyta efni 1Í nýrri útgáfu Eplica 2.0 hefur allt viðmót verið stórlega endurbætt. Með tilkomu nýs vefritils hefur öll efnisumsýsla verið einfölduð og keyrir nú í bæði Windows og Mac með tilkomu stuðnings við Firefox vafrann. Notendur geta nú tví-smellt á það texta svæði sem þeir vilja vinna í og byrjað að skrifa, einfaldara getur það ekki verið. Skjalaumsýsla (sem nálgast má úr vefritil) hefur verið tekið stakkaskiptum. Efni er unnið sem fyrr beint á vef og í því útliti sem vefurinn var hannaður í.

Réttinda og ritstjórnarferli

Réttindakerfið og ritstjórnarferlið hefur tekið stakkaskiptum og stjórnun og birting efnis er nú einfaldara en áður. Stjórnendur og skráðir notendur Eplica geta kosið að samþykkja vistað efni áður en það er birt á vefnum, tilgreint líftíma og aðgangsstýrt bæði vefflokkum og efni. Hægt er að deila efni á milli vefsvæða hvort sem að um er að ræða innri eða ytri vefi og má þannig samnýta m.a. greinar og skjöl.

Bætt skjalaumsýsla

Skráning skjala og mynda hefur einnig fengið yfirhalningu. Hægt er að velja fjölda skjala og mynda í einu og skrá í skjalasafnið. Skjalasafnið les nú sjálfkrafa skráð metadata (lýsigögn) sem kunna að fylgja myndum (EXIF) og getur notað það til að skrá dagsetningu myndar, alt-texta og myndatexta. Skjalastjóri gefur færi á að fara yfir og leiðrétta skráningu, myndastærðir og afrit skjala.

Ýtarlegar leiðbeiningar

HjálpÝtarlegar leiðbeiningar má nálgast frá öllum helstu aðgerðum Eplica, þegar smellt er á hjálparhnapp færist notandinn inn á viðkomandi viðfangsefni inn á hjálparvef og fær því strax leiðbeiningar án þess að þurfa að fletta í gegnum alla hjálpina. Farið er ítarlega í gegnum efni er snýr að vefritil, skráningu og breytingu greina, skjalaumsýslu ásamt fleiru.

Að auki má nefna:

  • Bætt aðgengi að gögnum í gegnum stjórnkerfi
  • Bætt rekstrarumhverfi, aukin afköst
  • Stuðningur við mörg tungumál í stjórnkerfi
  • Þýðingarkerfi, notað til þýðinga á gögnum.
  • Ný og betri Leitarvél


Fjölmörgum nýjum einingum hefur einnig verið bætt við:

  • Nýtt vörukerfi
  • Félagakerfi
  • Uppskriftakerfi
  • Togari

.



Leita á vefnum


Ef þú vilt fræðast meira um Eplica eða hefur aðrar spurningar getum við hringt í þig.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Símanúmerið okkar er 5 500 900.

Við svörum milli 08:00 og 17:00 alla virka daga.

Verkefnastjóri gefur upplýsingar um verkefni í vinnslu og ráðgjafar okkar taka við spurningum um ný verkefni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica